fbpx

ALILA WANG

Uncategorized

Í síðustu viku skoðaði ég litlar fashionistur og deildi þeim hér á blogginu.
Alila var ein af þeim en sú er orðin fræg fyrir sinn “persónulega” stíl sem að frændi hennar Alexander Wang hjálpar henni að móta – ef að svo má að orði komast.
Helstu tískumiðlar fylgja litla barninu eftir til að ná af henni myndum – það má taka það fram að barnið er 3ára!!!, jafngömul dóttur minni. Mér finnst þetta svo sérstakt en kannski ekkert ótrúlegt miðað við hverra manna hún er.
Alila Wang er með´etta! En aumingja barnið fær ekkert um þetta ráðið.
Dæmi hver fyrir sig …

xxx,-EG-.

LIGHT & MAGIC

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Hanna Lind

    18. April 2012

    Sá þessar myndir einmitt um daginn.. og æh þetta finnst mér hálf súrt.

    Sumt voða kjút en þessi bolur t.d á efstu og neðstu myndinni finnst mér allt of ýktur fyrir 3 ára barn. Skórnir eiginlega líka.. til hvers að setja 3 ára barn í svona “háa” skó.

    Loðjakkinn er líka einum of. Ótrúlega kjút þegar maður sér hana í honum en guð.. getur ekki verið þæginlegt fyrir hana og hvað þá einhver hliðartaska í stíl.

    Æ.. hvað ég held að þetta barn verði ofdekrað og frekt hahah