fbpx

AIRWAVES SKÓRNIR?

Ég keypti svo fína skó þegar ég var á landinu í síðasta mánuði. Skór sem gætu gengið við Airwaves dressið fyrir einhverja? Þeir vöktu athygli margra hér fyrir stuttu og því við hæfi að koma þeim betur að. Ég alveg elska þá, þó ég hafi samt sem áður ekki haft tækifæri á að nota þá mikið fram að þessu. Þó þeir séu svona háir eins og raun ber vitni þá eru þeir samt mjög þægilegir og ég mun því nota þá meira, ég er alveg viss um það.

12202162_10153348764402568_1564518911_n12204748_10153348760982568_1287671781_n

Frá: Won Hundred
Keyptir í GK Reykjavík

Þegar ég keypti parið var ég með valkvíða því það voru aðrir flatbotna frá sama merki sem fönguðu líka athygli mína. Sjáið þá betur hér.
Ég veit auðvitað ekkert hvort ég sé að mæla með einhverju sem kannski er löngu uppselt en það er vel þess virði að gera sér ferð á Skólavörðustíg seinna í dag í sérstakt Airwaves partý sem verslunin heldur í tilefni helgarinnar. Þau bjóða uppá 20% afsláttur af öllu! Ég hefði alveg viljað þiggja þann afslátt þegar ég fjárfesti í mínu pari …

Gleðilega Airwaves helgi!

p.s. Pattra veður á Airwaves – kíkjið yfir til hennar til að fylgjast með hennar ferðum.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR

OKTÓBER Á INSTAGRAM

Skrifa Innlegg