Derhúfur er fylgihlutur sem margir tengja við sumar og sól. Það virðist þó vera einhver breytina þar, því húfurnar hafa verið mjög áberandi trend hjá skandinavískum töffurum í vetur – punkturinn yfir i-ið í rauninni. Gunni á nokkrar en hefur ekki endilega fundið sig með hinar hefðbundnu derhúfur heldur vinnur meira með afalúkkið. Ég náði þó að finna eina góða sem ég gaf honum í afmælisgjöf í byrjun mánaðar. Sniðið hentar betur, hún er aðeins breiðari en þær sem við höfum átt áður og því langar mig að mæla með henni hér á blogginu. Ég var sniðug þegar ég keypti þessa gjöf á Gunna, því ég hef notað hana jafn mikið – 2 fyrir 1 kaup ;) Frá: ACNE
//
Favorite accessory these days is Acne cap that I gave Gunnar as a birthday present. There is something about the form of this one that we really like – it’s a little heavier than a normal one. I am becoming so good at choosing presents for him that I can use as well – 2 for 1 ;)
Fæst: HÉR
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg