Hæ danska tískuvika. Ég er mætt til að svelgja tískuþorstanum að vana en í þetta sinn og í fyrsta sinn ákvað ég að slá tvær flugur í einu höggi og bætti börnunum mínum við flugmiðann á síðustu mínútu. Danski drengurinn minn þráði svo að koma til danska landsins og ég svosem líka að hann fengi tíma á leikvöllum borgarinnar til að halda tungumálinu við – það er því plan helgarinnar – róló! Bara að vera til, og njóta þess að hafa ekkert plan. EN plan dagsins í dag og á morgun er tískuvinna og þar er ég heppin að eiga Ölbu, unglinginn minn sem passar fyrir mömmu sína á meðan. Við látum hlutina ganga upp – það er á hreinu. Þegar þessi færsla er skrifuð er klukkan miklu meira en miðnætti svo löngu kominn tími á svefn hjá óléttri hamingjusamri konu.
Meira síðar, sjáumst –
Vi ses –
xx,-EG-.
@elgunnars á Instagram
Skrifa Innlegg