Tískuvikan í New York stendur nú yfir og ég fylgist spennt með úr fjarlægð. Eins og ég hef oft nefnt þá er það ekki síður götustíllinn sem heillar á þessum tíma árs. Hér eru til dæmis tvær flíkur sem kalla á mig, báðar passa þær vel við vetrardaginn mikla hér í Reykjavík.
Þessi dásamlega yfirhöfn frá Toteme eltir mig. Ég mátaði hana í Illum þegar ég var stödd í Kaupmannahöfn og hef hugsað um hana síðan og þangað til ég rakst á hana á götum NY City núna. Fæst: HÉR
Sænska og smekklega Babba selur mér nýtt lúkk með þessu fallega heklaða höfuðfati. Eftir smá rannsóknarvinnu þá fann ég út að það er frá THE SERIES – mig langar svo að eignast eins en það er mögulega auðvelt að útbúa svona sjálfur í höndunum? Ekki ég sjálf, það er á hreinu ..
Annars var það ekki fleira til að tala um frá tískuvikunni í bili, bara þetta tvennt og svo meira síðar.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg