Núna er allt komið á hreint varðandi íbúðina og lögfræðingurinn okkar gaf grænt ljós í gær. Íbúðin er formlega okkar. Það sem tekur við núna er allskonar æsingur, ganga frá núverandi, pakka, henda, gefa, selja, sparsla og hið mikilvæga: mála. Ég er á því máli að ég held að mig langi að íbúðin mín verði nökkuð dökk. Ég þarf að sjálfssögðu að fara manninn minn með á þessu máli og hann er einn þrjóskur fjandi. Flestir tala um að það “minnki rými” og ég eiginlega ætla ekki að kaupa það. Svartur klæðnaður á að grenna mann. Urban myth vinir. Mér persónulega líður eins og allir litir og lýsing nýtur sín tíu sinnum betur með dökkum veggjum og ég er svolítið að hallast að þessu. Ég er meira segja að verða meira og meira vissum að hreinlega detta í svartann lit. Ég eyddi morguninum mínum í að skoða þessi mál og ég tók nokkrar myndir saman.
Þið megið endilega deila með mér ef þið hafið einhverjar skoðanir á þessu eða hafið góða eða slæma reynslu.
Insta: helgiomarsson
Snap: helgiomars
Skrifa Innlegg