Ég geri ráð fyrir að föstudagsrútínan sé orðin skýr? Morgunbolli og tískulestur í Fréttablaðinu er góð byrjun á deginum.
Síðustu helgi urðu íbúar höfuðborgarinnar varir við fyrstu hvítu snjókornin. Þeim var fagnað með komu Vetrar konungs og fyrsta vetrardegi ársins 2015.
Nú er kominn tími til að færa þynnri haustflíkum aftar í fataskápinn og taka fram það hlýjasta sem við eigum fyrir dimma daga sem framundan eru. Kuldinn nálgast okkur hröðum skrefum og því mikilvægt að vera við því búin.
Það er ekki sjálfgefið að við á klakanum getum leikið eftir trendin sem tískupallarnir sýna okkur. Oft eru þar flíkur sem eru óhentugar veðurfarinu sem við eigum að venjast. Heppnin virðist vera með okkur þetta árið því síðar kápur, pelsar, dúnúlpur, stórir treflar og loð eru dæmi um vetrarklæðnað sem hátískan tók fyrir.
Náum okkur í innblástur frá Chloé, The Row, Marni eða Fendi. Allt er leyfilegt miðað við mismunandi útfærslur hönnuða og á meðfylgjandi myndum getum við stolið stílnum beint af pöllunum.
Chloé
Fendi
Marni
The Row
Yfirhafnir sjáum við í öllum litum, sniðum og efnum, bæði frá tískuhúsunum sem og ódýrari keðjum sem fylgja fast í fórspor hátískunnar. Minnum okkur á að það er aldrei í tísku að vera illa klæddur.
Hér að neðan fáið þið ólíkar hlýjar kauphugmyndir frá íslenskum verslunum.
Góða (vel dúðaða) helgi.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg