Ný föt í fataskáp dótturinnar eru úr lífrænni línu uppáhalds íslenska fatamerkisins okkar, Ígló&Indí. En eins og áður sagði þá kom í fyrsta sinn út sérstök organic lína frá merkinu. Punkturinn yfir i-ið við þessa fatalínu er að hluti af andvirði organic flíkanna renna til LÍF, styrktarfélag kvennadeildar Landsspítalans. Það gleður konu að styrkja slíkt.
Ég er heilluð af samstæðudressum á smáfólkið. Þau lúkka vel á sama tíma og þau veita þægindi. Pöndumunstrið sló í gegn á mínu heimili, og ekki síður húðflúrið sem falið er á höndinni.
Fötin eru falleg og það var útsýnið líka þegar hún klæddist þeim á deitdegi okkar mæðgna í gær.
Ég er svo heppin að eiga eina Ölbu mér við hlið þegar pabbinn stingur af í handboltaferðir.
Skrifa Innlegg