Það var vandaverk að fara yfir öll frábæru kommentin sem bárust frá áhugaljósmyndurum þjóðarinnar. Í samráði við RFA og Sögu Sig fór ég í gegnum hvert og eitt þeirra og að lokum valdi eitt úr. Það hefði auðvitað verið lang best ef við hefðum getað glatt alla, en við þökkum kærlega fyrir frábær viðbrögð.
Námskeiðið hefst í næstu viku og það eru ennþá örfá pláss laus. Ef þið hin sem skrifuðuð undir hafið enn áhuga á að komast að þá veitir kommentið ykkur niðurfellingu á staðfestingargjaldi – aukavinningar fyrir alla ; )
Til hamingju Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir (!) þú ert sú heppna að þessu sinni. Þú hefur fengið frítt inn á ljósmyndanámskeið hjá hjá Sögu Sig í RFA – upphaf inn í framtíðardrauminn.
Hólmfríður skyldi eftir sig þessar línur:
“Fyrst af öllu: frábært framlag og tækifæri :) Ég hef haft sturlaðan áhuga á ljósmyndun frá því að ég man eftir mér – mamma var alveg í vandræðum með mig þegar ég var yngri vegna þess að ég vildi alltaf vera fyrir aftan myndavélina en ekki fyrir framan. Ég hef lengi litið upp til Sögu, hún er frábær ljósmyndari (og ekki síst góð fyrirmynd fyrir stelpur sem vilja koma sér áfram í greininni). Ég er búin að láta mig dreyma í nokkrar vikur núna um að fara á námskeiðið hennar á RFA og væri þessi gjöf því meira en fullkomin snilld.“
Áhuginn virðist vera til staðar og það er frábært að þú virðist þekkja námið sem þú sækist eftir. Næstu vikur á ljósmyndaáhuginn vonandi bara eftir að verða ennþá sturlaðari eins og þú nefnir svo skemmtilega.
Vinsamlegast hafðu samband á eg@trendnet.is fyrir frekari upplýsingar. Ég hlakka til að fylgjast með þér í framtíðinni.
Gleðilegan föstudag kæru lesendur, takk fyrir að kíkja stundum við.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg