Ég mundi segja að BAST magazine sé eina nettölvublaðið sem ég nenni að lesa og hlakka til að skoða, enda mikið lagt í blaðið.
Ég fór og tók nokkrar myndir og aðstoðaði við gerð myndbands sem BAST var að framleiða í samstarfi við Narvi Creative myndbandið er leikstýrt af þeim Þorbirni Ingasyni og Ellen Lofts tökurmaður var Þorsteinn Magnússon.
Þetta leit ótrúlega vel út og gaman að fylgjast með svona sterkum fagmönnum vinna. Það var alveg fáranlega gaman að fylgjast með og ég komst ekki hjá því að taka nokkrar myndir af ferlinu.
Hafrún Karls ritstýra og yndislegi sonur hennar.
Hlakka SVO mikið til að sjá.
Skrifa Innlegg