Í dag var síðasti dagurinn með mömmu, en hún kom surprise á afmælinu mínu síðastliðinn þriðjudag.
Við nýttum gærdaginn í að fara uppí Mosen, sem var semsagt í bakgarðinum hjá fyrstu íbúðinni sem ég flutti í þegar ég lagði land undir fót til Kaupmannahafnar. Það var ótrúlega gaman að fara, en átti ég án gríns bestu tíma lífs míns í þessari íbúð með vinkonum mínum Kristjönu og Justinu. Það voru ansi mikið af flassbökkum þennan dag!
Mosen er stórkostlegt, stórt vatn og lítur út eins og atriðið í Notebook þegar Noah og Allie voru á bát og svanir útum allt. Fattiði?
Skrifa Innlegg