Dagurinn var dásamlegur.
Veðurspáin sagði að það yrði sól og sól og meiri sól, og sú veðurspá var hárrrrétt! Þrátt fyrir smá vind, sem var ekkert nema hlýr þá náði ég svakalegum lit.
Þetta var einn af þessum dögum sem öllu var ýtt til hliðar og bara legið á teppinu í sandinum án áhyggja. Mér meira segja tókst að steinrotast.
Ég ákvað að taka myndvélina með ef eitthvað skemmtilegt skyldi vekja áhuga minn – en það var ekkert sérlega mikið, ég og kærastinn lékum okkur aðeins í lokin eftir að við vorum orðnir pínu þreyttir á því að bara liggja (og ég var orðinn brunninn á maganum).
Skrifa Innlegg