Þessa dagana er ég bara í einhverjum fötum, jafnvel fötum af pabba, náttsloppinn hans, ég er upptekinn af hundunum mínum og litlu frænku minni. Þið vitið bara af því .. því færslurnar verða eflaust að einhverju leyti í takt við það.
Ferðaskrifstofan sem Elite vinnum með gefur okkur alltaf svaka nammipoka. Ég kláraði alla toffee machintosh molana, annars lét ég þetta vera. Willpower.
Elsku besta Sienna og ég fórum í kósytúr í jóla-Tívolí-ið
Eplaskífur & heitt kakó! Ekkert slæmt.
Það að vera kominn aftur til þessarar dömu er best í heimi, hún er fyndnasta, brosmildasta, fallegasta og skemmtilegasta barn sem ég veit um. Ég fæ ekki nóg, hjálpi mér.
Laufabrauðsgerð hjá ömmu og afa, búið að vera hefð síðan ég man eftir mér, hef þó misst af því síðustu ár. Ótrúlega næs!
Var ekkert að sleppa þessari elsku ..
.. eins og ég sagði fyrir ofan
.. sem þýðir að Dagný systir sé bara í ákveðnu fríi þessa dagana!
Þessi bók fór á óskalistann minn!
.. ooooog þessi! Látiði mig vita og ég skal láta ykkur hafa heimilisfangið mitt ókei?
Skrifa Innlegg