En ekki hvað .. sumup af gleðinni á Seyðisfirði. Í hvert skipti sem ég fer þangað, þá (vææmið coming) verð ég alltaf meira og meira þakklátur fyrir það sem ég á þarna. Það er virkilega ekkert betra og stórkostlegara en ALLT á Seyðisfirði. Fjölskyldan, vinirnir, orkan, fegurðin, fólkið, fjöllin, allt. Shit .. shit samt
Gæti ekki elskað þennan stað meira .. en já, ég hef skrifað þetta í mögulega allar færslur sem tengjast Seyðisfirði. En já, ég er alveg brjálaðslega ánægður með páskana, ég hélt sólarhringnum 100% í orden, vaknaði alltaf á milli 07:00 – 08:00 og datt ekki í sukkið og æfði eins og klikkaður. Ég yfirleitt sný sólarhringnum við, dett í það og æfi eitthvað takmarkað. Svo HÚRRA FYRIR MÉR .. því trúið mér, það er mjöööööög auðvelt þegar maður stundar busy life í Köben og svo ekki gera reeess á Seyðisfirði, en já áfram ég. Heh
Fyrsta sem ég gerði var að hitta þetta litla gull og lesa 501 Feluhlutir, ágæt bók.
Kristinn félagi minn keypti sér bát, svo við fórum á baujuna, ég lofaði sjálfum mér að áður en ég færi heim aftur að standa þarna í klukkutíma og hugleiða OG hoppa frá bátnum ofan í sjóinn og syna að baujunni. Geri það í sumar ..
Helgi aka Fasjon
Bræður á bauju. Mér fannst þetta mjög mikið sport.
Á baujunni sáum við sel. Skrifar maður ekki pottþétt bauja?
Þessi filter, við elskum hann öll punktur.
Þessi fallegi dásamlegi dýrlegi engill. Besti krakki í lífinu. Ég var að passa, og hún var í vöggunni sinni, vaknaði, og var vakandi. Svo tók ég hana til mín og lagði hana á hliðina og þá sofnaði hún hjá mér. Hjartað mitt hefði geta brotið brjóst kassann minn. Ástarspengja.
Skrifa Innlegg