Ég asnaðist til Odense að scouta módel og tók með mér Kristjönu Taroni vinkonu. Ég er algjör lestaperri og ég vildi óska þess að ég gæti leigt eitt sæti í lest og nýtt það sem skrifstofu. Ég elska lestir, mér finnst sóun að vera með tónlist í eyrunum því ég elska lestarhljóðið. Ykkur að segja gekk þessi scout túr illa og ekki neitt einasta módel var fundið! Engu að síður góður túr –
Nike Huarache & Nike Roshe Run
Sú besta, Kristjana.
Þetta er svo mikið sem æskuheimili Hans Christian Andersen! Það er frekar magnað ..
Hvað er lestaferð án speglaselfie
OUTFIT:
Bolur: Weekday
Peysa: Alexander Wang x H&M
Utan um hálsinn: 66°Norður
Buxur: WonHundred
Skór: Nike Huarache
Jakki: Arnarhóll – 66°Norður
Skrifa Innlegg