Eins og ég hef áður tjáð mig um, þá er ég alltaf eitthvað að reyna bæta & breyta hérna inní íbúðinni, sem er eins og hvítur strigi, endalaust hægt að gera eitthvað fínt & skemmtilegt.
Ég er þó að taka litlu skrefin, er núna með tvö verkefni í vinnslu.
En í gær kom ég við á Strikinu á leiðinni minni úr vinnunni og fattaði alltíeinu að nýja H&M Home deildin var tilbúin svo ég nýtti tækifærið og tók með mér eitt stykki sturtuhengi. Því okkar er bara hvítt og ljótt – og frekar gamalt.
Þetta var svo sannarlega skemmtileg lítil viðbót og breyting! Kæró fannst þetta fyrst of mikið, en auðvitað sagði hann svo seinna meir “ókei .. þetta er frekar kúl.” – 1 – 0 fyrir mér!
Þetta var án gríns besta myndin sem ég gat tekið – enda ekki stórt baðherbergi, en hey! Den er gode nok ..
Skrifa Innlegg