Ég vann lítið verkefni fyrir 66°Norður um daginn og þau komu svo dásamlega til móts við mig með gjafakorti í verslunum þeirra sem ég nýtti í þessa úlpu; Snæfell Parka –
Hef alltof lengi haft auga með henni svo ég varð hreinlega að nýta tækifærið og velja hana! Hún er alveg fáranlega næs og ég sé ekkert eftur að hafa valið hana. Mér finnst svo ótrúlega mikilvægt að eiga góðar úlpur fyrir veturinn, mér finnst fátt meira kúl en að vera hlýtt þegar það er skítkalt úti, og mér þykir fátt hallærislegra að vera skítkalt þegar það er skítkalt úti. Fólk í bolum og eða berleggja? Ah! Þið vitið, er það ekki?
Ó jæja, ég er allavega bilaðslega sáttur.
Skrifa Innlegg