Já kæru vinir, þið lásuð rétt. Núna á eftir er ég að fljúga einn til Egyptalands.
– en þó bara í 3 daga! Það kom því miður upp sorgaratvik sem gerir það að verkum að ég þarf að fljúga út einn og njóta mín með bókum, sól og skrifum í 3 daga, þá fæ ég til mín yndislegan félagsskap. Smá bobb í bátinn en maður lætur það ekki á sig fá.
Þetta verður bara tekið með jákvæðninni, enda í rauninni ekkert neikvætt við þetta þannig séð. Ég mun bara nýta tímann minn í að skrifa í nýkeyptu bækurnar mínar og lesa bókina sem ég er svo spenntur að lesa.
Hugsiði til mín, það er wifi svo ég verð eflaust virkur á instagramminu.
Halló sól & hiti, hlakka til að sjá þig!
Skrifa Innlegg