Ég er kominn með nýtt áhugamál, matarblogg, elda, prófa, skoða og allt í kringum það.
Sem þýðir jú auðvitað að þið megið endilega láta mig vita ef þið vitið um eitthvað gott!
Það áhugaverðasta og skemmtilegasta sem ég hef fundið hingað til er bloggið hennar Helgu Gabríelu. Drykkir, smoothies, hollar uppskriftir á hráfæðiskökum og hollustu pizzum. Spennandi & framandi ávextir og grænmeti sem hún notar í uppskriftirnar sínar. Ásamt uppskriftum skrifar hún um lífið sitt og deilir myndum.
Ég er allavega búinn að lesa allt í dag og í gærkvöldi og hlakka til næstu færslu.
Til að lesa klikkið á linkinn fyrir ofan, eeeeða HÉR.
Skrifa Innlegg