Þegar flugið mitt var bókað til Íslands þá vissi ég það að ég ætlaði gjörsamlega og ALGJÖRLEGA að neyða fögru píurnar sem ég blogga með hér á Trendnetinu að taka hitting, og þessi hittingur endaði semsagt í því að við gerðum hreinlega gott við okkur í miðbænum og fórum á vel valdna staði þar sem við vissum að við mundum fá fáranlega góða kokteila & “meððí”
Með stuttum fyrirvara er kannski ekki hægt að ætlast að allir komist þó að ég hafi reynt að sannfæra Elísubetu, Pöttru & Ásu til að fljúga frá Evrópu í þennan hitting, held kannski að þeim fannst það of mikið til að ætlast en mér fannst það ekki, fannst það bara mjög sniðugt. Svo ég, Svana, Hildur, Karen Lind og Theodóra mættu, öfga hressar og nokkrum númerum of dásamlegar.
Við byrjuðum á knúsum og faðmlögum og endalausu spjalli á 101 Reykjavík þar sem við fengum okkur mögulega bestu speltu pizzur í heimi. Humar & tígrisrækju pizzu & hráskinku speltpizzu, já halló, YYUMMURS.
Það er náttúrulega ekkert spaug hvað er gaman að vera í kringum þessa!
Elsku Hildur.
Pizzan & drykkurinn var eiginlega of gott, fullkomin byrjun á góðu kvöldi.
Mætt á Vegamót!
Þessi mynd einkennir kvöldið svolítið!
Mikil gleði – ég og Svana eiginlega í smá kasti samt.
Chilli Passion er snilld, þið skiljið ekki hversu mikil snilld ..
Ég & Theodóra fylgdum hjartanu og splæstum í skot, Theodóru fannst það geggjað!
MÆTT Á SUSHI SAMBA!!
Ég hélt mér bara í Mojito-unum, enda Sushi Samba frægt fyrir Mojitoana sína – og öll ástæða til.
Theodóra gólaði úr ánægju með Expresso martini-inn sinn.
& Þessir menn eru snillingar.
TAKK FYRIR MIG KÆRU STELPUR, ÞIÐ ERUÐ STÓRKOSTLEGAR!! x
Skrifa Innlegg