fbpx

Í dag – outfit.

Dagurinn var yndislegur, eyddi honum með góðum vinum, hittumst öll í fyrsta skipti hér í Kaupmannahöfn og munum eyða tíma saman hér á komandi mánuðum. Störtuðum Kaupmannarhafnarævintýrið okkar í dag.

Enn og aftur var ekki eitt ský á himni og sólin hátt í lofti. Svo kuldinn var ekki mikill þar sem sólin skall á.

Við sátum á Nyhavn í sólinni og sátum í Kongens Have þar sem við borðuðum ávexti & kjúkling í sól & skjóli. Einnig byggði ég upp gott karma í dag og fann veski sem ég skilaði heilu á húfi til eiganda síns eftir að hafa fundið hana á google, hún gaf mér dýrt súkkulaði og bettlari fékk súkkulaðið – þar sem ég var búinn að fá minn skammt af páskasúkkulaðisgleðinni.

Dagurinn var overall sjúklega nice!

1april2

1 april 1april 1april3

 Outfit;

Skyrta: All Saints
Jakki: All saints
Sólgleraugu: RAYBAN

Trefill: ACNE
Buxur: H&M
Belti: Andersen & Lauth

Skór: Nike Woven

Vonandi áttuði góðan annan í páskum! x

Páskadagurinn.

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Elísabet Gunn

    1. April 2013

    Þú ert nú meira gullið. Það er svo gaman að gera góðverk.