Það hlaut að koma að því. Í dag skall á mig smá heimþrá, og ég hef verið nokkuð latur í dag. Enda hefur veðrið boðið uppá fátt annað, vindur og berjandi rigning.
Við þekkjum öll þessa tilfinningu og hún er í rauninni ekkert nema jákvæð. Ég hef verið að vinna í myndum í dag og ætlaði að deila þeim á blogginu en í milli tíðinni fór ég yfir myndir á facebook, þær tögguðu og þær sem liggja þarna í földnum albúmum og datt í hug að henda þeim nokkrum inn þar sem þær snertu auðvitað smá við manni.
Þetta er í rauninni bara áminning á hvað maður á marga góða að og hvað er gott að vita að þau standa með opið fangið þegar maður kemur loks aftur heim – um jólin! Ekkert nema ánægja!
Eigði góðan þriðjudag x
Skrifa Innlegg