.. Leðurjakkans míns!
Ég hreinlega varð, ég hef nú heyrt það hérna útum eyrað mitt að það sé svaka lummó að vera taka myndir af sér í mátunarklefa, en ekki kýs ég að hlusta á svoleiðis, føj! Ég gat ekki annað en að kíkja á hann þar sem ég var að labba framhjá ACNE búðinni.
Það var hálf pínlegt að standa þarna í jakkanum vitandi það að þú ættir efni á 1/54 af prísnum.
Nei í alvörunni samt ..
Ég er búinn að vera velta því fyrir hvort ég gæti selt putta, eða nýru, eða lifur, eitthvað sem ég get lifað án, því ég held ég geti ekki lifað án jakkans. Dramatískt? Mér finnst það ekki heldur.
Krossum fingrum!
Skrifa Innlegg