Ungur piltur sem var nokkuð svartur í fatasmekk & lífstíl! Ég setti inn gamla mynd af mér uppá gamnið á instagram af sjálfum mér þegar ég var 15 ára og það voru ansi margir sem brugðu mikið og sýndu alveg hversu hissa þau voru í commentunum. Mér datt í hug að deila því hérna hvað maður var einu sinni skrautlegur.
Við eigum öll okkar fortíð sem mótaði okkur að því sem við erum í dag, hvort það séu buffaló skórnir, eða hiphop fötin, þá er það ekkert nema dásamlegt. Það er svo ótrúlega gaman að horfa tilbaka. ég viðurkenni fúslega að ennþá býr inní mér lítill gothari.
Jæja, hérna eru myndir frá því ég var yngri, frá circa 14 – 16 ára aldurs.
Enjoy!
Skrifa Innlegg