Titillinn segir sem segja þarf í rauninni – ég er búinn að eyða kvöldinu í ganga frá fötum og velja hvað á að fara á Fatamarkað Trendnets og hvað á ekki að fara á markað. Ég fékk Kasper líka til að taka til í sínum skáp svo þetta verður fínt – og við auðvitað tókum bara það fínasta & flottasta því jú, ég er ekki að fara taka ófallegar flíkur með mér þar sem ég er að burðast með töskur inn og útúr flugvelli.
Ég er með föt frá merkjum eins og Bruuns Bazar, All Saints, Weekday, Paul Smith, Burberry, Zara, Samsøe & Samsøe, Lee, NN07, Won Hundred og margt margt meira!
Í dag var síðasti dagur jólagjafainnkaupa og gekk töluvert betur en í gær! Ég er formlega búinn! – nema tvær gjafir. Eins og sannur Íslendingur þá segi ég við sjálfan mig að þetta reddast!
Ég er að koma heim á morgun, ég er að gubba úr spenning. Gubba I tell you ..
En ég tók nokkrar myndir af því sem verður á fatamakaðinum á KEX á laugardaginn.
Ónotuð frá LEE.
Skyrta frá Wood Wood – notuð einu sinni.
Zara jakki með pleður ermum – notaður þrisvar.
Burberry – Thomas Burberry.
Skyrta úr All Saints – ótrúlega lítið notuð.
Ónotuð úr Samsøe & Samsøe
J. Lindeberg belti.
Peysa úr Zara.
Ótrúlega lítið notuð peysa úr Weekday
Kannski notuð einu sinni – H&M
No Nationality Peysa (NN07) notuð einu sinni.
Gant Ruggar peysa – einu sinni notuð.
Burberry Brit skyrta – notuð einu sinni.
Nýleg Won Hundred peysa – notuð lítið.
Ég er að pakka, tvöfalt, svo .. drasl á gólfinu, horfiði framhjá því.
Ef þið skoðið myndina vel og vandlega getiði séð bóluna Blöðríði sem ákvað að spretta svona skemmtilega upp í morgunsárið.
HLAKKA TIL AÐ SJÁ YKKUR!
LAUGARDAGINN
KEX HOSTEL
FRÁ KL 12:00 – 18:00
xx
Skrifa Innlegg