Ég rakst á þessa bók í sænsku búðinni HOPE þegar ég var í leiðangri að finna gjafir handa kæróinum. Ég vissi strax að ég þyrfti að eignast hana, og vildi svo skemmtilega til að afmælið mitt var eftir aðeins fjóra daga. Hversu tilvalið að gefa sjálfum mér hana í afmælisgjöf?
Tim Walker er einn af mínum allra uppáhalds ljósmyndurum, en hann vinnur mikið með náttúrulega lýsingu og svakalegt set design.
Ég er búinn að vera liggja yfir henni síðan ég fékk hana. Ást í bók, yubb.
Skrifa Innlegg