Fyrir ekki svo löngu átti ég og minn kæri kall tveggja árasambandsafmæli eða to årsdag sem þeir gjarnan kalla þetta í Danska landinu.
Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, tvö ár. TVÖ ÁR, er ekki hægt að hægja aðeins á þessu? Ég er, ótrúlegt en satt á MAN Magasín deadlæni og er að leggja lokahönd á myndaþáttinn minn sem ég tók á Íslandi, og ég man að ég hugsaði “vá, endalausan tíma til að klára hann” .. WRONG!
Allavega, ég er heppnastur í heimi fá að kalla hann kæró, því hann er stórkostlegasti karakter í heimi.
66°Norður búðin var að opna í Kaupmannahöfn kvöldið áður svo ég og Kasper kíktum og þar sem ég splæsti á ansi fallega flík í gjöf handa honum og ég labbaði líka út með poka. Meira um það seinna!
Rosenborg slottið fallega.
Pínu kjút.
OUTFIT:
ÉG:
Derhúfa: Acne Studios
Trefill: Acne Studios
Peysa: Nike
Buxur: WHYRED
Skór: Nike Roshe Run
HANN:
Leðurjakki: ZARA
Peysa: Wonhundred
Buxur: ZARA
Skór: Acne Studios
Úr: Rolex
Skrifa Innlegg