fbpx

XO: ISABEL MARANT POUR H&M

DAGSINSH&MiPhoneLÍFIÐSHOP

photo 1photo 2

Mér datt þetta í hug. Þó að allt hefði klárast af slánum fyrsta daginn sem að lína Isabel Marant fyrir H&M kom í sölu, þá gerðu margir flýtikaup sem að þeir eru að skila af sér þessa dagana.
Hér að ofan held ég á þremur flíkum úr línunni. Tveimur buxum og einum bol.

Og hér fyrir neðan er ég í mátunarklefanum að máta ….

photo 4photo 3photo 5

 Þessar pallíettubuxur búa yfir einhverjum sjarma.

Pallíetturnar eru svo grófar og þéttar að ég myndi helst vilja nota þær casual í hátíðarmánuðinum sem að genginn er í garð.
Ég er ótrúlega skotin í þeim og á sama tíma í vafa um gæði þeirra fyrir mun hærra verð en gengur og gerist í H&M.  Þær eru byrjaðar að slitna á annarri hliðinni með því móti að það losnar um eina og eina pallettu. Það yrði synd ef að þær færu að hrinja utan af mér buxurnar – ekki boðlegt!

Ég verð að hugsa þetta vel á meðan að ég held þessum einu að mér á röltinu um verslunina – það má auðvitað ekki taka eina flík frá enda bara örfáar í sölu ennþá.

Hvað skal gera? Hmm …

xx, -EG- (posted from my iPhone)

ORÐ: NELSON MANDELA

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

6 Skilaboð

  1. Helga

    7. December 2013

    Þær eru geðveikar!!!

  2. Jovana Schally

    7. December 2013

    Þær eru mjög fínar, en ég myndi aldrei eyða peningum í buxur sem væru byrjaðar að slitna, alveg sama hvaða merki og eftir hvaða hönnuð þær væru.

    Svo ég segi, ekki kaupa!
    :)

  3. Guðrún Fríður

    8. December 2013

    mann langar í allt eh blink í des, en svo sér maður eftir öllu strax í jan – ekki kaupa! voru leðurbuxurnar ekki fínar?

  4. Rut R.

    10. December 2013

    ohhhhh mig langar svo í þessar…. en svo sá ég hvað þær kostuðu!