fbpx

Who the fuck is BOB?


FÓLKFRÉTTIRÍSLENSK HÖNNUN

Góðan daginn! Loksins get ég kynnt ykkur fyrir BOB vini mínum, en honum verða allir að kynnast.

ÞETTA ER BOB:

11329906_1447225262258545_7049131771790274073_n

Bob er flottur gæji – hann er jákvæður og hans markmið í lífinu er að gera betur í dag en í gær.

BOB Reykjavik er nýtt merki sem býður uppá prentaða boli og peysur. Bolirnir fara í sölu á morgun í Húrra Reykjavik, en þar verður opnunarteiti frá 17-20. Í framhaldinu verða bolirnir í sölu í versluninni og á  www.bobreykjavik.com.
Vörurnar eru gefnar út í samstarfi við UNICEF á Íslandi. Með því að kaupa einn bol eða peysu gefur þú eitt UNICEF-teppi sem er nauðsynlegt fyrir lítil börn í flóttamannabúðum þar sem kalt er í tjöldum um nætur. Verður ekki fallegra.

BOB1
BOB

Kosovo
KOSOVO

hani
COCKY  

together1
TOGETHER

Myndir: Baldur Kristjáns

BOB er hönnun og framleiðsla mannsins míns Gunnars Steins Jónssonar og Róberts Gunnarssonar handboltakappa. Ég er því svo heppin að hafa fengið að hafa puttana aðeins í verkefninu frá fæðingu og er í dag titluð sem nokkurskonar “tísku og fjölmiðlaráðgjafi merkisns.”
Ég mun örugglega segja ykkur aftur frá BOB á næstunni. Hann á eftir að kenna okkur margt og fyrir mér er hann orðinn hluti af íslensku fjölskyldunni. Þið finnið það þegar þið fáið tækifæri á að kynnast honum betur.

Sumartrendið í ár! Ekki spurning!

Sjáumst í Húrra á morgun.

xx,-EG-.

Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR

SUNNUDAGS INNBLÁSTUR

Skrifa Innlegg