Góðan daginn! Loksins get ég kynnt ykkur fyrir BOB vini mínum, en honum verða allir að kynnast.
ÞETTA ER BOB:
Bob er flottur gæji – hann er jákvæður og hans markmið í lífinu er að gera betur í dag en í gær.
BOB Reykjavik er nýtt merki sem býður uppá prentaða boli og peysur. Bolirnir fara í sölu á morgun í Húrra Reykjavik, en þar verður opnunarteiti frá 17-20. Í framhaldinu verða bolirnir í sölu í versluninni og á www.bobreykjavik.com.
Vörurnar eru gefnar út í samstarfi við UNICEF á Íslandi. Með því að kaupa einn bol eða peysu gefur þú eitt UNICEF-teppi sem er nauðsynlegt fyrir lítil börn í flóttamannabúðum þar sem kalt er í tjöldum um nætur. Verður ekki fallegra.
BOB er hönnun og framleiðsla mannsins míns Gunnars Steins Jónssonar og Róberts Gunnarssonar handboltakappa. Ég er því svo heppin að hafa fengið að hafa puttana aðeins í verkefninu frá fæðingu og er í dag titluð sem nokkurskonar “tísku og fjölmiðlaráðgjafi merkisns.”
Ég mun örugglega segja ykkur aftur frá BOB á næstunni. Hann á eftir að kenna okkur margt og fyrir mér er hann orðinn hluti af íslensku fjölskyldunni. Þið finnið það þegar þið fáið tækifæri á að kynnast honum betur.
Sumartrendið í ár! Ekki spurning!
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg