Úps. Ég fæ bara móral. Það eru greinilega margir sem að huga vel að nöglunum sínum. Og ekkert smá vel. Ég þarf að taka ykkur til fyrirmyndar.
Þáttaka helgarinnar í #TRENDNEGLUR á Instagram með @MaybellineReykjavik gekk vonum framar og inn bárust tæplega 800 myndir(!) á þessari einu helgi.
Þið eruð algjörir snillingar. Það er svo gaman þegar að lesendur taka þátt – þá verður miklu meira líf á síðunni.
Þessi fallega stílhreina mynd er á allan hátt með þetta! Litur 569 er sigurmyndin að þessu sinni. Bæði á nöglum og á bolla.
Verðlaunin eru sannarlega vegleg því að Maybelline Reykjavík ætlar sér að gefa 50.000 króna inneign til eigandans.
Til hamingju @mariablondal88 -hafðu samband á trendnet@trendnet.is fyrir frekari upplýsingar.
Það borgar sig að merkja við #TRENDNET á Instagram.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg