Eins algengt og það þykir í dag að verslunarkeðjur og hönnuðir eða tískufyrirmyndir sameini krafta sína – þá þótti það mjög nýtt á nálinni árið 2007. Það merka ár byrjuðu Topshop samstarf með tískufyrirmyndinni og ofurfyrirsætunni Kate Moss. Allt ætlaði að verða vitlaust og ég man mjög vel eftir fyrstu flík sem að ég fjárfesti í á þeim tíma – vesti sem mér fannst pörfekt. Samstarfið gekk vel frá upphafi og úr urðu 14 fatalínur frá Moss fyrir TopShop þangað til að ævintýrið tók “enda” haustið 2010.
Moss er komin tilbaka og að þessu sinni ásamt ofurstílistanum og góðvinkonu sinni, Katy England. Þær stöllur munu því sameina krafta sína fyrir næsta sumar hjá Topshop – ss14.
Fram hefur komið í fjölmiðlum vestanhafs að Sir Philip Green, eigandi TopShop sé í skýjunum með endurkomu vinkonu sinnar. En Moss og Green eru miklir mátar og mæta iðulega saman á tískutengda viðburði.
Um endurkomuna segir Kate Moss: ,,It feels like I’m back at home working with Topshop”.
Þetta er spennó! Engin spurning um annað.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg