Ég var hoppandi glöð fyrir utan elstu verslunarmiðstöð í heimi – The Galleria Vittorio Emanuele II.
Verslunarmiðstöðin er staðsett í miðbæ Mílanó og heitir eftir Vittorio Emanuele II sem að er fyrsti konungur Ítalíu. Húsið er hannað af Giuseppe Mengoni og er byggt milli áranna 1865 og 1877. Ótrúlega sjarmerandi að hús sem þetta sé enn í fullri notkun fyrir sama iðnað og það var hannað fyrir í upphafi. Í gær var það iðandi af mannlífi sem að heimsótti það af mismunandi ástæðum.
Það var til dæmis gaman að fylgjast með fínu frúnnum sem að röltu uppstrílaðar milli hátískuverslananna. Pokarnir voru merktir Prada, Gucci eða Loui Vuitton.
Við fjölskyldan létum okkur nægja að kaupa okkur ís – hann var ótrúlega góður.
Skemmtileg heimsókn.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg