Það þarf vart að kynna fyrir ykkur hæfileikaríka tískuljósmyndarann Sögu Sig. Hún er ekki bara best í sínu fagi heldur er hún heil í gegn sem karakter sem er að mínu mati stór partur af velgengni hennar.
Ég fylgi henni á Instagram og fæ hjörtu í augun yfir hennar persónulega stíl sem er alltaf til fyrirmyndar. Vonandi þið líka –

Fyrir utan heima hjá mér í London á leið til Íslands í vintage galla samfesting, rauðum Miista boots og með MiuMiu gleraugu –

Með hatt sem ég fékk úr Kron í svörtum Aftur kimono kjól, svörtum Aftur leðurbuxum og með Hildur Yeoman armband –

Skyrta frá KALDA, þær gera bestu skyrturnar, fékk mér þessa og svo fékk ég líka svörtu rullukragapeysurnar sem þær voru að gera –

Rauður Vivienne Westwood kjóll úr KronKron, armbandið mitt sem ég er með er silfur armband með rauðum jaspis stein sem ég fékk fyrir myndatöku ég er eiginlega alltaf með það, hringarnir eru gamlir Jens hringar sem ég stal frá mömmu –

Skór úr MIISTA, á þá líka í rauðu, vinkona mín vinnur í Miista og eg er í sample size svo hún kemur stundum með gjafir heim til mín eða ég kaupi hjá henni á mega góðu verði –

Uppáhalds lookið mitt, ullarpeysa sem mamma prjónaði og 20 ára gamlar buxur sem mamma keypti í Sævar Karli, svartur Barbour jakki og gönguskór –

Í sömu dragt frá Rey með klút sem ég var að fá Andreu Maack, hún er byrjuð að hanna klúta þeir eru ótrúlga flottir –

Rauða dragtin mín frá REY , Rebekka sem hannar REY gerði spes rauða dragt fyrir mig og hana, ótrúlega ánægð með hana enda allt vandað sem kemur frá henni –
Hver er Saga Sig?
Ljósmyndari búsettur í London.
Hversu mikilvægur er klæðaburður í þínu fagi?
Ég vinn í tísku svo hann skiptir máli, Ég hef mikinn áhuga á hönnun svo ég hef gaman að klæðast vönduðum vel hönnuðum flíkum.
Áttu þér einhverja tískufyrirmynd?
Nei, en ég á einstaklega smekklega vini og fjölskyldu, annars eru nokkrar flottar konur í kringum mig sem mér finnst alltaf flottar t.d Hrafnhildur Hólmgeirs, Katrin Alda og Sólveig Káradóttir.
Must fyrir veturinn?
Þegar ég kaupi mér föt þá reyni ég að fjárfesta í flíkum, kaupi færri í staðinn en þær endast lengur. Ég versla eiginlega mjög lítið því flest fötin mín eru skipti dílar við vini mína og fataskápurinn samanstendur af fötum frá REY og svo Kalda sem gerir bestu skyrturnar, skart frá Hildi Yeoman, og föt frá Kronkron og svo elska ég Aftur.
Ég versla eiginlega ekkert í London og þá bara i einni búð sem er á horninu hjá mér og selur vintage hönnunarföt, í þessari búð (Storm in a Teacup) þá hef ég keypt t.d Chloe kimono og Isabel Marant kjól mjög ódýrt og mjög fín gæði. Mér finnst skemmtilegast að versla í Reykjavík, þar eru svo margar flottar búðir.
Ég hugsa að ég kaupi mér fyrir veturinn 2 rúllukragapeysur ég fékk mér líka Kimono kjól frá Aftur í síðustu viku, á örugglega eftir að nota hann mikið í vinnunni. Annars væri ég líka til í svört boots og nýja biker jakkann frá Jör það er klárlega á óskalistanum mínum.
Hefur þú einhver tískutips fyrir ungar stúlkur?
Versla færri flíkur og kaupa vandaðra, vera meðvitaðri um hvaðan fötin koma.
Hvað er á döfinni hjá Sögu Sig?
Ég er núna stödd á Þórshöfn á Norðurlandi og er búin að vera hérna í viku að vinna að ljósmyndaseríu sem ég vonast til að sýna fjótlega, ég hef aldrei verið hérna áður og ég er hugfangin af Langanesinu það er svo fallegt hérna! Svo fer ég aftur til London í næstu viku og þá tekur bara við vinna, skjóta myndaþætti og tvær undirfata herferðir, svo undirbúa sýningu í Sviss sem ég er partur af á næsta ári.
TAKK @sagasig – Mér finnst þú flottust!
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg