fbpx

STÍLLINN Á INSTAGRAM

FASHIONISTAINSTAGRAM

Annetta Rut Kristjánsdóttir er sveitastelpa búsett í Berlín sem hefur verið dugleg að birta myndir af stílnum sínum, maka og heimili á instagram.

Hún vinnur í ansi áhugaverðu fyrirtæki sem að kallast Outfittery, en það þjónustar karlmenn við fatarinnkaup. Starf Annettu felst í því að þjónusta og selja fatnað frá toppi til táar á mismunandi karlmenn hverju sinni. Hún segir að flestir viðskiptavinir kaupi 10-15 vörur sem að starfsmennirnir raði saman í heildarlúkk í fallega útbúna kassa. Þjónusta í lagi!

– Ég féll fyrir Annettu Rut á Instagram. Vona að þið gerið það líka.

Hver er Annetta Kristjánsdóttir?
Ég er 25 ára gömul, fædd og uppalin í Neskaupstað sem gerir mig að Norðfirðing. Eftir æsku og yndi í sveitasælunni fór fiðrildið ég á rás. Ég flutti ung til Reykjavíkur og eftir 7 ár þar flutti ég með eina ferðatösku til London með vinkonu minni. Eftir mikil ævintýri í London kynntist ég þýskum draumaprins og með honum flutti ég til Berlínar þar sem ég er búin að búa í rúmlega eitt ár. Ég er að vinna hjá fyrirtæki sem heitir Outfittery og stefni í nám á næsta ári í vöruhönnun.

Hefur þú alltaf spáð í tísku?
Já það má segja það. Ég hef alltaf haft mjög mikin áhuga á tísku og klæðaburði,fyrir mér er fataskápurinn minn eitt af mínum hobbíum sem ég gef góðan tíma í pælingar hvað má bæta í, hvað má missa og hvað er næst á óskalistanum

Er hver dagur í lífi þínu útpældur þegar að kemur að klæðaburði?
Nei alls ekki. Þegar það er virkur dagur og ég er að fara í vinnuna þá byrjar hver einasti dagur á þvi að ég hef ekki hugmynd í hverju ég á að fara og fötin fara á flug. En aftur á móti þegar eitthvað hefur verið planað og ég er að fara í veislu eða þegar eitthvað tilefni er til þá hef ég kannski verið að velta fyrir mér hinu og þessu í 1 til 2 daga og finnst mjög skemmtilegt að pæla og skipuleggja.

Hver er þín tískufyrirmynd?
Amma mín og nafna hún Annetta Ásgeirsdóttir var og er sú allra flottasta í bransanum,aðrar tískufyrirmyndir eru helst þær sem hafa farið sínar eigin leiðir, eins og til dæmis Brigitte Bardot og Kate Hudson. Svo finnst mér Beyonce og Gwen Stefani alltaf sjúklega flottar.

Áttu þér framtíðarplön?
Ég á alltaf rosa mikið af framtíðarplönum og það helsta sem er á döfinni núna er að sækja um í háskóla hér í Berlín fyrir næsta ár og svo er ég að vinna í að opna vefsíðu eftir nokkra mánuði.

Einhver tips fyrir aðrar fashionistur?
Aldrei fara út að skemmta þér í óþægilegum skóm, ekki kaupa bara svart og ekki spara sparífötin of mikið.

Takk @ANNETTARUT

xx,-EG- 

TIL SÖLU

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Pattra's

    5. July 2013

    Nettan mín er svo mikið með þetta :*

    • Elísabet Gunnars

      5. July 2013

      Þú ert líka sæt með henni á einni mynd hér fyrir ofan :)