Guðdómlega Miranda Kerr opnaði tískusýninguna hjá Stellu McCartney. Því miður er þetta dress ekki hlutu af SS14 hjá henni Stellu þó að fröken Kerr hafi klæðst því baksviðs fyrir sýninguna í morgun. Vintage stóð undir myndinni sem að mætti mér á Instagram í morgunsárið. Það vill oft verða þannig. Flíkin er þó ekki ósvipuð þeirri sem að Cara Delevigne klæddist á pallinum.
Ég er alltaf hrifin af því sem að Stella gerir og í dag er engin undantekning á því.
Falleg litapalletta og dásamleg snið – kvenleg en kúl.
Þið sjáið sjálf hvað koma skal hér fyrir neðan –
Elska þetta allt! En línuna í heild sinni sjáið þið: HÉR en þó eru ennþá að birtast myndir, instant.
SS14.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg