fbpx

SNEAKERS

TREND

Þegar að ég flutti til Svíþjóðar fyrir rúmum þremur árum síðan þá man ég hvað það kom mér á óvart að önnur hver stelpa klæddist Converse allan sólahringinn. Þ.e.a.s, þegar að ég horfði í kringum mig úti á lífinu voru þær lítið að stressa sig á öðru. Það var algjörlega nýtt fyrir mér frá 101 Reykjavík þar sem að ég og vinkonur mínar hækkuðum cm með háum hælum við hvaða tilefni sem að okkur gafst.
Það hefur samt breyst. Og í dag fagna ég hinu mikla sneakers trendi sem að gengur yfir.

Prófið að sleppa hælunum í kvöld.
Klæðist strigaskóm við kvölddressið og þið verðið með´etta – eins og þær!

Við getum ekki beðið um það betra !

Góða helgi til ykkar,
xx,-EG-.

ASOS ÚR

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Harpa

    2. September 2012

    Ég er nýflutt til Aarhus og tók eftir því sama! Rosalega margar stelpur úti á lífinu í strigaskóm, fílaða ;)