Ég má til með að deila með ykkur frábæru atriði úr Stundinni okkar. Nútíminn hefur þegar birt brotið sem segir svo skemmtilega (og eðlilega) frá samkyneigð. Við mæðgur horfum nú yfirleitt á þennan uppáhalds þátt hér í þýska en þó ekki síðasta sunnudag og því bíð ég spennt með að sýna heimasætunni þegar hún kemur heim í dag. Fögnum fjölbreytileika og hver getur deilt boðskapnum betur en einmitt Páll okkar Óskar – frábær! Og þau bæði í þessu atriði.
Gott og uppbyggilegt myndbrot til að sýna börnunum okkar og segir nánast allt sem segja þarf á nokkrum mínútum.
Pressið á play.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg