Eins og svo oft áður er maður kominn með hugann fram í tímann, en það vill oft verða þegar hönnuðir hafa vörurnar sýnilegar fyrir framan nefið á manni. Freistingarnar verða til!
Ég heimsótti vinnustofu Ígló&Indí á dögunum en þar var allt á fullu við undirbúning fyrir Playtime Paris sem merkið tekur þátt í núna þriðja árið í röð. Playtime Paris er ein af stærstu sýningum í þessum geira og þangað koma saman barnamerki hvaðan af úr heiminum – frábært að íslenska Ígló&Indí sé þar á meðal.
Ég bíð spennt (en alveg róleg) eftir næsta sumri með þessar fínu flíkur í huganum. En þetta er auðvitað bara brot af því sem koma skal. Spennandi …
Simple ..
Orange verður áberandi ..
Guli liturinn sem passar við allt .. langar.
_
HÉR getið þið skoðað það sem er í boði þessa dagana. Ég var að enda við að fletta í gegnum útsöluna þar sem má gera góð kaup.
Íslenskt, já takk.
xx,-EG-.
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg