Karl Lagerfeld kom mörgum að óvöru í fyrra þegar hann fór óvenjulega leið í sýningu sinni fyrir Chanel.
Hann toppaði sig svo sannarlega núna í morgun (!) en sýning hans hefur farið eins og eldur í sinu um veraldarvefinn í dag.
Hér fyrir neðan sjáið þið hversvegna. Frábær hugmynd sem fangar tíðarandann í dag eftir #heforshe og síðast en ekki síst franska uppreisnar andann. En eftir að hafa búið í Frakklandi tvö ár þá kynntist ég því að mótmæli eru daglegt brauð og hverja helgi gátu þeir staðið saman og gengið göturnar í mótmælaskyni – einhver sjarmi yfir því.
Settur var upp “Chanel Boulevard” inní Grand Palais og tísku mótmælaganga gengin með Cöru og Karl sjálfan fremst í flokki, eftir þeim fylgdu síðan Georgia May Jagger, Gisele og fleiri. Vel heppnað show og enn betur heppnuð markaðssetning.
Línuna í heild sinni sjáið þið: HÉR
xx, EG.
Skrifa Innlegg