Nú hefur Rammagerðin opnað í Kringlunni, JESS! Ég heimsótti nýju verslunina og elska vöruúrvalið, þarna finnum við eitthvað fyrir alla – íslenskar eðalvörur.
LESIÐ LÍKA: GLEÐILEG JÓL Í RAMMAGERÐINNI
Margir muna eflaust eftir því þegar ég heimsótti Rammagerðina á Skólavörðustíg fyrir síðustu jól en þá var verslunin nýbúin að fríska upp á útlit sitt með frábærum hætti. Rammagerðin var stofnuð árið 1940 og hefur áratugum saman verslað með ullarvarning og fatnað úr íslensku ullinni. Enn þann dag í dag er megináhersla lögð á að selja hönnun og handverk frá hundruðum aðila um allt land og að mínu mati er sérstaklega vel vandað til innkaupa og áherslurnar fallegar. Þarna finnum við íslenska hönnun í hæsta gæðaflokki frá okkar hæfileikaríka hönnunar og handverksfólki. Jólagjafaverslun upp á 10 og nú er bara að velja á milli. Hér að neðan er brot af úrvalinu sem tók á móti mér í Kringlunni –
Mjög heillandi nýjung frá Rammagerðinni eru þessir taupokar sem fanga vel íslenska andann, afhverju erum við alltaf að afsaka okkur? Sísí Ingólfsdóttir/Afsakið er nafnið á bakvið verkið. Við megum eiga von á sambærilegum servíettum í sölu fljótlega.
Stúdíó Flétta hefur slegið í gegn með kertastjakana fínu .. þessi jólakerti kalla á mig
Óvá!
Rokk í Reykjavík
Hef lengi mælt með vörunum frá TAKK .. gaman að sjá þær í góðu úrvali hér
Sokkar fást HÉR eftir Hugleik Dagsson
Minnum okkur á?
Þetta er alltaf jafn ágæt spurning og ég sjálf tengi vel við hana á þessum tíma árs ..
Kaffi eða te?
Sængurnar frá Lopi Draumur fást hér
Draumaljós og teppi
Magneu húfur
URÐ: Vörurnar eru innblásnar af íslenskri náttúru og innihalda íslensk hráefni, kynnið ykkur endilega
Íslensk Tarot kerti
Þessari nýjung er ég sjálf mjög spennt fyrir !!
Í bleikri BAHNS peysu ..
.. sem fæst í fleiri litum
Elska veggplattana ..
Ertu gull eða silfur? Hlín Reykdal gaf nýverið út skartgripalínuna Young – ó svo fallegt.
Bækur fyrir börn ..
Vigdís, bók um okkar mestu kvenfyrirmynd – dásamlegar teikningar eftir Rán Flygenring
Bækur fyrir fullorðna ..
Nú fæst As We Grow í Kringlunni, verðið ekki svikin ..
Ú elska að blanda AWG kraga við þykka peysu ..
BÁL: Ég er húkt á þessari lykt ..
Handklæði fyrir hann? Fyrir hana? Fyrir smáfólkið?
Fegurð fyrir heimilið hvert sem augað leiðir þig ..
Lampi: Ragnheiður Ingunn
Skál í boðinu ..
Hér selur Feldur jólahúfuna – svört brún eða hvít eins og ég er með á höfði hér? Ég mátaði þó alla litina á story HÉR
Meira frá Feld, hér fyrir smáfólkið okkar ..
Kormákur og Skjöldur
Fischer heimurinn er HÉR
Til hamingju með gullfallega nýja verslun í Kringlu kæra Rammagerð.
Ég mæli hiklaust með heimsókn.
Eitt að lokum, sjáið þennan æðislega jólakött, mjjáVÁ
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg