Lakkaði þessu lakki á neglurnar í gær – merktu “Vintage Leather”.
Áferðin þornaði við það sama og útkoman varð mattar grófar neglur – með jú, einskonar leðuráferð.
Ég held að þetta sé lakk sem að þú setur á þig fyrir sérstakt tilefni. Fyrir eins og eina og eina kvöldstund sem að það á við.
Kaupir það frekar vegna þess að það lúkka svo skemmtilega, heldur en að ætla að kaupa lakk sem á að duga út vikuna. Sem að er líka bara í lagi fyrir svona lúkk. Síðast þegar að ég setti það á mig byrjaði það að flagna daginn eftir – en ég var ekkert að passa það neitt sérstaklega. Núna setti ég tvær umferðir og ætla að gera aðra tilraun hversu lengi það helst á.
Þetta er eitthvað nýtt! Allavega fyrir mér. Skemmtilega skrítið.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg