Sem móðir tel ég mig knúna til að segja ykkur frá nýjustu fréttum.
Lindex opnar nú sína aðra verslun á Íslandi – Lindex kids í Kringlunni.
Búandi þrjú ár í sænsku landi var ég mjög reglulegur gestur í barnadeild verslunarinnar enda verðin svo góð á krúttlegum fatnaði.
Eftir að ég flutti til Frakklands þá hef ég nýtt mér það að koma þar við á Íslandi þegar að ég er á landinu. Ég á því örugglega eftir að kíkja við í nýju verslunina í jólafríinu.
En nýja verslunin opnar í nóvember í plássinu þar sem að Oasis var áður.
Fór að skoða Facebookið hjá þeim sem að er mjög virkt. Langar í þessi fínu skólaföt á Ölbu. Lúkka ótrúlega þæginleg. Samstæðu fínerí í fallegum litum.
Til hamingju Lindex Ísland. Frábært hvað gengur vel :)
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg