Það er ótrúlegt að pæla í því að í gær klæddi ég mig svona …
Ég: Leðurjakki: SecondHand/sænska Myrorna. Alba: Ullarkápa: COS
En í dag var heldur meiri léttklæðnaður …
Þessu get ég vanist.
Ég: Stuttbuxur: Monki, Toppur: H&M, Sólgleraugu: Af Gunna. Gunni: Sólgleraugu: CheapMonday/WeekDay, Skyrta: SecondHand/sænska Myrorna, Stuttbuxur: These Glory Days. Alba: Peysa: H&M, Samfestingur: Monoprix.
Eftir mjög marga rigningardaga í franska, þá átti ég daginn í dag ótrúlega mikið skilið – finnst mér.
Það var vaknað snemma og haldið til strandbæjarins, Pornic, sem að er í hálftíma akstursfjarlægð frá Nantes.
Þar eyddum við fjölskyldan góðum frídegi. Borðuðum góðan mat, fórum á ströndina og skoðuðum mannlífið sem að var mjög lifandi þennan daginn.
-Góðar stundir.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg