Ég fékk þennan fína biker jakka í gjöf frá mínum heittelskaða á dögunum en ég var búin að máta hann oft áður en að hann varð minn. Jakki úr dásamlega fínu leðri og sniði sem að hentar lengi lengi fram í tímann. Litlu detailarnir: td. saumarnir á bakinu og grófur rennulás á ermunum gera hann pörfekt að mínu mati.
Frá: Mango – þeirri fínu verslun.
Eina vesenið við að eignast svona flík á þessum tíma er kuldinn sem að er úti í annars fallegu veðri – ég ætla samt að nota hann. Skelli svo yfir mig ullarkápu á axlirnar. Það má.
Leður gleður ….
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg