Tvær haustkápur hafa verið fastar í höfðinu á mér síðan að ég sá þær með stuttu millimili. Er það ekki einmitt sú flík sem maður fjárfestir í á þessum tíma árs?
Sú efri er frá Zöru og er meira eins og teppi með ermum – svo laus í sniðinu og í léttu efni sem maður vefur sig inní. Hversu kósý það!
Sú neðri er frá Selected Femme – oversized, svakalega hlý og Elísabetarleg að öllu leiti að mínu mati.
Þær eru of ólíkar svo hægt sé að velja á milli.
Hverja kjósið þið? Getið þið eitthvað hjálpað mér í þessum efnum?
Langar …
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg