Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman heldur áfram að klæða stjörnurnar en hún hefur verið að meikaða með mörgum flottum stjörnum og fyrirmyndum síðustu árin. Að hin eina sanna Kylie Minogue sé mætt í íslenska hönnun er gjörsamlega tryllt að mati undirritaðrar og ég tek hattinn ofan af fyrir Yeoman teyminu að vera komin svona langt. Heimurinn minnkar og þarna er greinilega hugsað stórt – áfram íslensk hönnun!! Sjáið þessa drottningu –
Þið sem viljið leika lúkkið eftir, þá fæst toppurinn sem Kylie klæðist: HÉR
Yeoman Reykjavík býður upp á 10% afslátt af öllum kjólum í verslun þessa dagana, með kóðanum: DRESSUP
Annars bara fínt að enda þetta á næntís nostalgíu – Happy Monday!
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg