fbpx

KVENNABLAÐIÐ

FRÉTTIRÍSLENSK HÖNNUNMAGAZINE

kv

Í dag fór nýr áhugaverður fréttavefur í loftið, Kvennablaðið.is (!)
Það eru nokkrir dugnaðarforkar sem að halda úti blaðinu. En ein þeirra er leikkonan Steinunn Ólína en langaamma hennar, Bríet Bjarnhéðinsdóttir, stofnaði samnefnt blað árið 1895. Það má því segja að um endukomu sé að ræða en nú á nútímaformi sem nettímarit.

Ásamt skrifuðum greinum birtast líka video viðtöl við áhugaverðar konur úti í samfélaginu.

Ég var spennt að horfa á viðtal við Helgu Ólafs yfirhönnuð hjá Ígló&Indí. En ég er mikill aðdáandi fatamerkisins fyrir litlu skottuna mína.

.. og auðvitað enn spenntari að horfa á hana Hildi okkar í nýja hlutverkinu sínu í Einveru. Ég er mjög spennt að kíkja þangað sjálf í heimsókn.

Til hamingju með þennan nýja íslenska netmiðil. Hlakka til að fylgjast með.

xx,-EG-.

LYKTUM EINS OG OLSEN SYSTUR

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. ....

    7. November 2013

    hérna…hérna flott ;)

    • Heiðdís

      7. November 2013

      Vá sammála!
      Ég gat ekki klárað að horfa á hvorugt ,myndbandið, veit ekki hver þessi kona/spyrill/blaðamaður er, en hún mætti vel fara í gegnum spurningarnar sínar og undirbúa sig – “skoo…” “hérna” í öðru hverju orði sem og virðist ekki hlusta á svör þeirra sem hún er að taka viðtal við og fara í næstu spurningu þaðan.
      Ekki æpandi fagmannlegt og því miður þar sem þetta eru skemmtileg viðfangsefni og flottar konur sem hún er að tala við..

      • Elísabet Gunnars

        7. November 2013

        Ég er viss um að það kemur bara með tímanum ..
        Þetta er mjög heimilislegt eins og það er í dag en ég hlakka til að fylgjast með framhaldinu. :)

  2. Eva

    8. November 2013

    …sammála, kjánahrollur niður í tær hérna! Hún þarf að æfa sig betur þessi, kemur vonandi hjá henni með æfingunni. Myndi splæsa í einhvern með reynslu til að hafa þetta meira pró, annars spennandi síða:) go konur!!