Norðanfólk getur glaðst yfir opnun nýrrar verslunar í Akureyrarbæ en á fimmtudaginn opnaði hurðin á Kauptúninu. Verslun sem býður upp á mikið úrval af skandinavískri heimilis- og gjafavöru. Ég fékk lánaðar myndir frá Facebook síðu verslunarinnar til þess að sýna ykkur brot af því besta sem að í boði er. Mér sýnist á öllu að erfitt sé að fara tómhentur þarna út.
Verslun sem vert er að kíkja á. Örugglega mjög velkomin fyrir allt smekkfólkið sem þarna býr.
xx,-EG-.
Skrifa Innlegg