Ég hef legið uppí rúmi í allan morgun, kósað mig með fólkinu mínu og manað mig í að standa upp til að byrja daginn.
Ég bara get ekki …. ! En það má á þessum degi ársins.
Ég veit ekki meiri “sunnudag” en þegar ég vakna á jóladag, sama hvaða vikudagur er.
Því er tilvalið að bjóða uppá einhverskonar “sunnudags” innblástur í tilefni þess.
Það er náttfatadagur í dag. Það er á hreinu.
Ahh …
Silki frá toppi til táar –
Karlie Kloss –
Mary Jane Russell, Vogue 1993 –
Wildfox editorial –
Ef þið þurfið út úr húsi í dag, þá er hægt að klæða sig smart í sama lúkki –
See by Chloé 2015 –
Smáfólkið –
Þessi orð, segja allt sem segja þarf –
Kaffibolli númer 1 2 eða 3?
Gleðileg jól … með sínum –
Kósýtime –
Carrie Bradshow gefur besta innblásturinn –
Unnustinn sýndi frumkvæði og dreif sig út í jólaskokk. Ég ætti örugglega að taka mér hann til fyrirmyndar?
Við mæðgur liggjum ennþá og ég hellti mér upp á annan kaffibolla á meðan ég skrifa þennan póst. Alba leikur sér með allar fallegu gjafirnar sem hún fékk loksins að opna í gærkvöldi. Biðin var þess virði.
Vonandi áttuð þið yndislegan gærdag með fólkinu ykkar.
Gleðilega hátíð yfir hafið bláa.
xx,-EG-.
Fylgstu endilega með:
Elísabet Gunnars á Facebook – HÉR
&
Trendnet á Facebook – HÉR
Skrifa Innlegg